Matur, menning, heilsa
Matarbloggið mitt
Naan-brauð
Uppskrift:
2 tsk þurrger
1 msk sykur
1 dl léttmjólk
1 dós hrein jógúrt (2 1/2 dl)
um það bil 7 dl brauðhveiti
1/2 tsk salt
1 tsk lyftiduft
2 msk ólivuolía
1 tsk garam masala (má nota karrý og kanel á hnífsoddi í staðinn)
1/2-1 tsk salt
1 msk smjör
1 hvítlauksrif
3-4 kvistir ferskur kóríander eða 2 msk þurrkaður kóríander
Aðferð:
Ég setti saman gerið og sykurinn í skál. Velgdi svo mjólkina og jógúrtið upp í 37°C og helti yfir gerið og sykurinn. Þetta fékk svo að standa í um það bil 15 mínútur. Ég blandaði svo saman helmingnum af hveitinu saman við mjólkurblönduna ásamt saltinu, lyftiduftinu og olíunni. Næst hrærði ég vel. Ég bætti meira af hveiti við og hnoðaði þar til það hvorki festist við mig, né skálina. Svo stráði ég hveiti yfir og lét skálina standa í heitu vatnsbaði í um 15 mínútur.
Af 15 mínútum liðnum hnoðaði ég degið aftur, bjó til lengu úr því og skipti því svo í 8 jafn stóra bita. Ég mótaði bollur úr deginu og flatti bollurnar út með deginu. Næst setti ég þær á bökurnarpappír og setti þær inn í ofninn og stillti á 230°C.
Það seinasta sem ég gerði var að skera hvítlauksrifið niður í mjög litla bita og setja út í smjör sem ég bræddi í potti. Þegar brauðin voru tilbúin þá setti ég hvítlaukssmjörið yfir. ÞBrauðin voru svo borðuð með kjötrétti í kvöldmat.
Hérna er svo myndband af því þegar ég bakaði brauðin:
https://www.youtube.com/watch?v=51C7j945BpU&feature=youtu.be